Hæ hó hæ hó og svo famveigis. Jæja
er þá ekki kominn tími til að hella af skálum reiðinnar, he he
eða kanski bara að blogga smá eins og venjuleg
mann(sv)eskja.
Það er nóg búið að vera að geast í
mínu blessaða lífi.
Ég fór t.d. austur á
fermingarbarnamót um sjómannadagshelgina. Ó guð hvað það var
skrítið að hitta alla þessa “krakka” eða á ég að segja allt þetta
fólk aftur. Sumir höfðu breyst all svakalega eða á ég að segja
flestir, já alla vegana þroskast.
Sumir á fullu að mennta sig og aðrir
á fullu í að stofna fjölskyldur og en aðrir bara að lifa lífinu og
hafa gaman. Já en nóg með það J.
Þetta byrjaði með því að við hittumst
öll á föstudagskvöldinu og sátum saman sötruðum bjór og ýmsa aðra
drykki, já og borðuðum snakk ekki má gleyma því
J.
Við spjölluðum saman bæði um líf
okkar í dag í þá gömlu góðu daga þegar að við vorum í Grunnskóla
Reyðarfjarðar J. Já ýmsar minningar spruttu
upp og voru þær nú mis góðar en samt flestar bara hlægilegar
í dag. Síðar um kvöldið héldu flestir á Kósy að djamma. Það
var alveg roslega gaman saman.
Síðan var á dagskráinni að við
stelpurnar myndum nú mæta eldhressar í kvennahlaupið daginn eftir.
Eða eins og Berglind orðaði það “ Það væri nú gaman að mæta með vel
í skvísunni í kvennahlaupið” he he. En ég held nú að mætinginn hafi
verið frekar slæm.
En það sem var næst á dagskrá var að
mæta í siglingu klukkan 13:00 að staðartíma út á Eskifjörð, já og
viti menn ég mætti eins og draugur þangað. En sá nú lítið af
draugum úr árgangi 82 á þilfari Hólamtinds. Sá ekki yfir í hin
skipin.
Næst bauð hann Þóroddur okkur upp á
sýningartúr um nýja Grunnskólann á Reyðarfirði, en því miður þá kom
ég nú bara í blá endan á þeim túr L. En slildist mér að það væru
komnir svo margir inngangar í skólann að það væri fyrir hvert
einasta hverfi í bænum sér inngangur he he eða svo gott sem.
Þá næst horfðum við á gamlar upptökur af þorrablóti og
árshátíð frá því að við vorum í 5,6 og síðan 10
bekk.
Síðan var ekið í rútu um Reyðó og
skoðaðar allar þær framkvæmdir sem eru þar í gangi. Já og eins og í
öllum góðum sýningartúrum höfðum við leiðsögumann og var það hún
Linda. Takk fyrir það.
Síðan fengum við ávaxtasafa og kökur
í boði hennar Marlínar en hún var að kenna okkur í gamla
daga.
Síðan borðuðum við saman Pizzu um
kvöldið og höfðum gaman saman langt fram á rauða nótt
J.
Þetta var alveg frábær helgi og vil
ég þakka öllum þeim sem komu að skipulagi og framkvæmd þessa móts
kærlega fyrir allt J.
Þá er lítíð annað að segja en bara
bless í bili.
Kveðja Sibba Sveitavargur